Þá er það ákveðið. Ég ætla ALDREI að eignast börn!! ég var að passa Ronju í gær og barnið vaknaði, og var allveg trítilótt!! Og það er ekkert smá... Hún öskraði og öskraði í meira en klukkutíma þangað til hún var orðin eldrauð í framan og var farin að kúgast og læti... Ég var skíthræddur um að barnið væri fárveikt og að deyja eða e-ð..... En svo hringdi Pála í mig í hléinu á myndinni og sagði mér að leggjast með hana upp í rúm og halda utan um hana, og eftir smá stund þá þreyttist hún á öllu spriklinu og garginu og sofnaði.... Ég reyndar líka en.... :) Hver hefði samt trúað að fyrsta manneskjan sem ég myndi kúra með í langan tíma væri 6 mánaða gömul stelpa?? :D Hún er svo mikið hnoð, líka þegar hún er rauð í framan af öskri... :þ
Í gær heyrði ég ketti slást, það var óhuggulegt....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home