....Lyfleysan....

bull og vitleysa

þriðjudagur, apríl 6

Þessi dagur er einn af mestu gleðidögum lífs míns.
Ég ákvað nú að taka mig til aður en ég byrjaði að læra og prenta út eins og eitt formúlublað í almennri efnafræði II (þetta var auðvitað eftir smá slór, tilraun til að skipuleggja tíma minn, þunglyndiskast þegar ég komst að því að ég kemst ALDREI yfir þetta, ryksuga í herberginu mínu og skipta um rúmföt, tvo morgunmata og að sjálfsögðu kaffitilbúining). Þá ákvað ég að fyrst ég var nú að þessu að prenta líka út formúlublaðið í greiningu. Og viti menn!! Á formúlublaðinu eru öll risa-ógeðis-ómögulegt að gera-heildin sem eru aftast í Calculus!! Ég sem var einmitt að svitna bara fyrir 12 tímum síðan yfir því að þettta gæti ég aldrei reiknað! JIM, ég elska þig.......
Meiðsli mín í öklanum eftir Bondleikinn tóku sig upp eftir göngutúrinn með mömmu; NEVER again!! Svo eru alltaf að birtast fleiri og fleiri marblettir.... :s

Annars vildi ég óska þess að menn væru eins og dýr; stjórnuðust aðeins af frumkvötum og togstreita á milli tilfinningar og skynsemi væri engin. Jafnvel aðeins 5 sekúndna minni! Þá held ég að lífið væri gott.....
Reyndar er Ronja sú mannvera sem ég öfunda mest af öllum. Ég væri allveg til í að láta halda á mér út um allt, ég þyrfti aðeins að gefa frá mér smá væl og þá yrði stjanað við mig og mér gefið að borða, allir vildu leika við mig og halda á mér og ég hefði engum skyldum að gegna gagnvart öðrum mannverum.... Það hlýtur að vera allveg einstaklega ljúft líf......

Ég er að spá í að halda áfram að lesa, fyrst nánasti ættingi Hóru Jóns í prentaralið er búin að ljúka sínu starfi.... Kannski geri ég einhverja stórmerkilega uppgvötun og vinn Nóbelsverðlaunin. Þá fæ ég að dansa við allar stúdínurnar, ég vona að sænskar stúdínur séu sætar, þótt ég hafi heyrt að þær séu einstaklega óliðtækar....... ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home