....Lyfleysan....

bull og vitleysa

laugardagur, apríl 10

Þetta var ekki góð nótt, eftir að ég loksins druslaðist upp í rúm eftir að hafa læst herbergishurðinni og svona þá var ég andvaka heil lengi og svo dreymdi mig illa. Það var ofvaxið tígrisdýr að elta mig og einhverja aðra um vetur einkustaðar (þetta var einhver svona ofurhetju action draumur), og það var svo stórt að ég var á stærð við loppuna á því. Ég var víst búin að reikna út að við þyrftum að hlaupa á 50 - 400 km hraða á klukkustund til að sleppa.... Svolíðið stór óvissa samt..... :s Svo allt í einu var það komið fyrir framan okkur, og gleypti lokaskýrsluna mína í eðlisfræði. Og þegar ég spurði hann af hverju í andskotanum hann var að þessu, þá sagði hann bara: "ég geri bara það sem ég vill." Ég vona að þetta sé einn af þessum öfugu fyrirboðum, þar sem vont í draumi er gott í alvöru. Svo var líka e-ð ungabarn þarna, sem ég man ekkert hvað var að gera. Þetta var nebbla ýkt langur draumur......
Ég er ekki bara myrkfælin, heldur líka birtufælinn greinilega, og eftir að hafa paranoiast soldið áðan ákvað ég að fá mér páskaegg; og fékk að sjálfsögðu: "Geðheilsa er gulli betri". Þið fáið smá breik núna til að hlæja.....
Pæliði samt í hvernig það er að vera geðklofa og sjá í allvörunni dótið sem maður er að ímynda sér að sé í myrkrinu??? Þá held ég að ég myndi missa mig endanlega...... Það er sá þjóðfélagshópur sem fær mesta samúð mína í augnablikinu.

Í gær fann ég uppáhalds Deftonesdiskinn minn sem ég er búin að halda að sé týndur í marga mánuði í vitlausu hulstri. Sá sem setti hann þangað er vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram og taka afleiðingum gjörða sinna.

Frænka mín var að eignast rauðhært risabarn í gær, það er gaman :)

Barn nr. 1 var valið maður leiksins á landsleik í gær, það finnst mér ekki skrýtið þar sem það er náskylt mér.

Ég þori ekki að borða fleiri páskaegg af ótta við fleiri málshætti um geðheislu mína.

Ef einhvern langar til að koma og vera hjá mér í nótt; feel free. Ég tek það fram að ég fer að sofa svona 11 og vakna 7 eða 8, og læri allan daginn.

Ég á afmæli eftir 12 daga :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home