....Lyfleysan....

bull og vitleysa

fimmtudagur, apríl 8

Áðan fékk ég miklar gleðifréttir. ÉG ER MEÐ PRÓFTÖKURÉTT Í EÐLISFRÆÐI!!! Þ.e.a.s ef ég fæ ekki fall fyrir skýrsluna mína, en ég býst nú svosem ekkert við því.... (Annars minni ég stráksa bara á glasið sem Helga bauð honum á árshátíðinni ;) ) Þeir sem ekki eru kunnugir ættu kannski að fá að vita að ég er frekar tæp á próftökurétti vegna vanskila heimadæma.....

Ég borðaði páskaegg áðan, samt bara lítið og ómerkilegt skrípi og mín fékk þennan prýðilega málshátt: "Þeir falla minnst sem fljúga lægst"
Svoldið skondið að ég haf alltaf reynt að lifa eftir þessu, meðal annars var málshátturinn minn í árbókinni í 10. bekk: "Enginn fellur lengra en til jarðar" sem mér hefur alltaf fundist ágætis speki, og mjög sönn. Ég meina; hversu slæmt getur ástand orðið? Ef maður hefur vaðið fyrir neðan sig þá ætti maður ekki að brenna sig, allavega ekki mikið.....

Orðið blog minnir mig alltaf á blob, eða kviksyndi eða e-ð, þetta er augljóslega orð yfir e-ð slímugt og ógeðslegt sem umvefur þig og kæfir þig, merking þess hefur eflaust breyst í tímans rás og gleymst.....

Ég á afmæli eftir 14 daga, eða tvær vikur nákvæmlega :D Þá er landlægur frídagur þess til fögnuðar.

Takk

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home