....Lyfleysan....

bull og vitleysa

mánudagur, apríl 5

Ég er að spá í að fara að aðhyllast gothiskan stíl að öllu leiti.... Héðan í frá ætla ég aðeins að ganga í svörðum og blóðrauðum (eða allavega mjög dökkum almennt) síðum pilsum og lífstykkjum, hlusta aðeins á drungalegar sinfóníur og óperur, nota aðeins kertajlós við allar framkvæmdir, hræðast vampírur og drauga eins og satan sjálfan, sem ég by the way óttast mjög og trúi á í þokkabót, sækja kirkjur á hverjum degi, giftast sextugum karli skynsemishjónabandi, og reyna að sinna öllum mínum kvenlegu skyldum af bestu getum (ég fæ mér að sjálfsögðu tvítugt viðhald). Svo myrði ég eiginmanninn á hrottalegan hátt og drekk úr honum blóðið, og verð þá þekkt eins og þarna einhver greyfynja sem var geðveik (ef einhver man...?? ) verð varpað í dimma dýflissu með ýmiskonar ógeðum frá dimmustu skotum undirheimanna (sjá í Sandman myndræna lýsingu) þar sem ég svo dey úr berklum um þrítugt, ef ekki fyrr, og fer þaðan beint norður og niður og verð krýnd drottning Heljar, s.s fallegu hliðarinnar á henni og mun drottna þar til eilífðarnóns.
Mér finnst þetta góð framtíðarsýn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home