Ég er að spá hvort ég eigi að reikna meira eða fara fyrr að sofa... Ég er nebbla komin smá eftirá í voru plani..... :s Það voru einhverjur furðulegir nördar á næsta borði við okku Eysu á prekinu, og þótt ég hlustaði og hlustaði GAT ég ekki náð um hvað þeir væru að tala!! Ég giska þessvegna á að þetta hafi verið
e-ð tölvumál..... Sem að ég skil ei.
Barn nr. 2 er að reyna að einoka fjarstýringuna heyrist mér, það á það til greyið....
Barn nr. 1 var að kalla mig tölvugeek, ég er að spá í að fara að lyfta og lemja það síðan....
Ég fékk mér bjór á prekinu, það var gott, og ég er ekki frá því að ég sé bara orðin svolítið kennd!! ;)
Ég á í erfiðri sálartogstreitu núna, hmmmmm..... Þarf að finna út hvort svona líður hjá eða hvort maður þurfi að gera e-ð í svona löguðu? Hver togstreitan er verður ekkert lýst nánar hér, enda eru þetta opinber skrif..... Kannski get ég bara lesið þetta í burtu. annars er ég búin að sökkva mér í lestur í tvo daga og ég er strax farin að sjá fyrir mér einhver dipole moments og annað drasl. Hvernig ætli ég verði eftir mánuð af þessu í viðbót?? Það verður spennandi að sjá... Ef ég má hafa tölvu á geðsjúkrahúsinu þá kannski skrifa ég e-ð....
Svo er sumardjamm EE í sumar, allir að mæta í strápilsum í góðum fíling!! Við Eyrún ætlum að byrja að plana strax 15. maí; þetta verður ROOOOOsalegt.
Svo á ég afmæli eftir 22-7 daga, ef einhver vill gefa mér gjöf...... :p

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home