....Lyfleysan....

bull og vitleysa

föstudagur, apríl 9

Þýðing óskast !!! (eða allavega útskýring)

Kd = Distribution equilibrium for a solute between immiscible solvents

(bls 86 í efnagr. bókinni)

Ég bara kem af fjöllum........ Svona er að mæta ekki í fyrirlestra í marga mánuði :s

Annars er ég að deyja úr rotni heima hjá mér yfir bókunum, og ég er með hausverk. Ég er búin að setja á mig gleraugun og taka 500mg paratabs, en það virðist ekkert virka. Ég er að spá í hvort ég leggi í Treo en ég er ekki viss um að ég þori því því ég vil helst vera fær um að hugsa núna næstu klukkutímanna....
Kannski prófa ég bara heimatilbúna aspirínið :)

Svo er ég líka að auglýsa eftir fólki sem vill vera hjá mér yfir páskana því ég er einn heima og ég er ennþá hræddur eftir Gothica :(

Missionið um að taka kökuna mistókst. Barn nr. 2 stóð yfir henni allan tímann og gætti hennar með vökulum arnaraugum, og tók það ekki einu sinni í mál að skilja eftir heima smá bita handa mér í einmanaleika mínum. Það var varla að ég fengi smá af kremleyfunum ofan á brauð!! Þannig að ég á bara einhverjar kökur keyptar útí búð sem mig langar ekkert í :'( Þessi kaka er líka örugglega bara VOND og EITRUÐ!!

Stelpur móðgist þið ekki þegar strákar sem þið vitið að eru með thing fyrir ykkur ganga út?? Eða er þetta bara ég og mín eigingirni?

Ég á afmæli eftir 13 daga. Nautamannafélagið ROOOOOKKAR!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home