....Lyfleysan....

bull og vitleysa

fimmtudagur, apríl 15

Já, þar hef ég það, ég er hommi..... Ég er ekki frá því að ég sé svoldið sjokkeruð....
Annars var ég að spá í að grafa mig djúpt í jörðu og vera þar í svona ár eða svo....
Það minnir mig á það!! Vorir skólafélagar voru að komast að því að ég er trúleysingi og ekki í þjóðkirjunni og svona. Þau höfðu meðal annars miklar áhyggjur af því hvar ég ætti nú að láta hola mér niður þegar ég dræpist; en ég get allveg fullvissað alla um eitt: ÞAÐ VERÐUR EKKI Í VÍGÐRI MOLD, allavega ekki miðað við vorar skoðanir í dag.... Ef ég drepst og ég verð jörðuð kristilega, þá geng ég sko aftur, BIG TIME! Takk...
Svo aðhyllist ég ekki giftingar svo að það skiptir mig engu máli.... Annars má fólk sem er ekki í þjóðkirkjunni allveg gifta sig þar, ég veit um dæmi. Og stelpur; ef þið verðið óléttar, segið ykkur þá úr þjóðkirkjunni annars verður trúfrelsi barna ykkar brotið um leið og þau fæðast.
Trúarbrögð eru barn síns tíma, s.s. þess tíma þegar maðurinn hafði ekki næga vísindalega þekkingu til þess að geta útskýrt hlutina, og í dag eru þau rót hins illa í heiminum, ásamt þjóðrembu. Hey....? Kannski eru trúarbrögðin komin frá Lúsífer til þess að valda ófriði í heiminum. Þannig að þessi guð sem allir trúa á er í rauninni Lúsífer og hans hyski og þangað munu allir fara, og vera aðhlátursefni okkar hinna, sem fáum að gera það sem við viljum því við létum ekki leiða okkur í gildru :D

Annars ætla ég að varpa fram íhugunarefni til allra þeirra sem trúa: Ef við gefum okkur að það sé til e-ð æðra afl (því eins og Hawkings sagði: "það er ekkert hægt að útiloka í þeim málum"), af hverju helduru að þinn guð sé það frekar en einhver annar?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home