....Lyfleysan....

bull og vitleysa

laugardagur, apríl 24

jámm, það er nú það....
Í morgun vaknaði ég í góðum fíling og fór í sturtu og svona í góðum fíling, þegar ég allt í einu mundi: METALLICATÓNLEIKARNIR!! Já, believe it og not, þá var ég búin að gleyma.... Allavega, I roared and I rampaged, og hringdi og sendi sms út um allar trissur að minna fólk á atburðinn (og flestir komu af fjöllum) og dreif mig svo upp í Síðumúla þar sem ég stóð í rigningu og roki í rúma tvo tíma. En.... WE HAVE A TICKET TO THE METALLICA CONCERTS!! Þar með fóru 3 tímar af lærdómi í vaskinn. Svo kom ég heim og bjó mér til mjög djúsí samloku og grillaði hana, og las svo blöðin, þá fór c.a. klukkutími. Eftir það þá gekk ég fram og var þegar rekin í ríkið með harðri hendi fyrir eitt stykki sem þarf ekki að hafa áhyggjur af prófum þótt það sé vika í þau, þá fór hálftími. Og þegar ég kom heim aftur sá ég hitt stykkið horfa á tilvonandi mág minn leika listir í XXX og þurfti auðvitað að horfa á undrið. 2 tímar. Svo fór síminn minn að hringja nonstop í klukkutíma þegar ég loksins settist niður.

Tími til spillis: 6.5 tímar. Ekki töff.

Svo gat ég ekki reiknað nema kannski 3 dæmi af þeim sem ég reyndi við, og nú er ég bara orðin reiður og pirraður. REIIIIIIÐUR..........

áður en ég fer að vinna er ég að spá í að stinga af fjarri mannabyggðum og gerast hugleiðandi einsetukona á fjalli sem stundar sjálfsþurftarbúskap.
Hæna og lamb óskast í afmælisgjöf.
Verst bara að ég sturlast gersamlega úr mirkfælni svona fjarri mannabyggðum, ég er meira að segja hræddur í upplýstum stigagöngum að nóttu til.... Samt hef ég aldrei orðið var við draugagang, ekki einu sinni í hinum reimdustu fjörðum sem Eyrún heldur að séu ekki til....

Gelgjurnar sem voru fyrir framan mig á Placebo voru aftur fyrir framan mig í röðinni í dag!! Kannski erum við bara ment to be togeather.... :)

Ég fékk mjög gagnlega bók í afmælisgjöf frá Önnu Pálu: Making love in japanese. Hún er semsagt full af hinum ýmsu setningum til að segja á japönsku, og verður hérmeð alltaf höfð meðferðis og verður notuð óspart...
Ég ætla að byrja á að sérhæfa mig í curses and insults kaflanum og hér koma dæmi:

Kuso - shit
baka-janai? - Ertu heimskur?
kichigai - Geðsjúklingur
Neboken-ja neyo - get your head out of your ass
kiero - fuck off
kono kuso-onna! - Tíkin þín!
Yariman! - Hóran þín!
chinchin chiisai! - þú ert með lítið tippi! (sérstaklega alvarleg móðgun)
Okama - hommi

Svo nokkur gleðileg:

Biru nomitai - Mig langar í bjór
mo suki janai-kara, denwa bango kaeru - ég elska þig ekki lengur, svo ég ætla að skipta um símanúmer :D
sekushii-dane - þú ert sexý
kisu shite - kysstu mig
piru nonderu? - ertu á pillunni? (annars er pillan lítið notuð í Japan)
Kande - bite me
iku iku (kvk)/ iki-so-da (kk) - Ég er að fá það
itta? - fékkstu það?

Þetta var hvernig á að stunda kynlíf og móðga aðra í Japan. Annars eru japanir yfirleitt einstaklega kurteist fólk. Næst skrifa ég hvernig þið getið náð ykkur í einhvern að sofa hjá eða móðga í Japan, það er nú skemmtilegra allavega að kunna að heilsa og svona....

Annars er ég að spá í að breytast í lúlla núna, svo ég geti vaknað á morgun og svona.... :P
Þetta vonandi nýtist ykkur vel.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home