Lendið þið einkutímann í sví að þegar þið liggið uppí rúmi á bakinu með lokuð augu og allt í einu fara öll hljóð að hækka og hækka þangað til klukkuhljóð verða ærandi há og maður fer að heyra furðulegustu smáatriði geðveikt vel, og svo líður manni eins og maður titrar; eða réttara sagt maður virðist vera í titrandi umhverfi einhvernveginn?? Þetta kemur stundum fyrir mig, og er þægilegt svona fyrst en svo þegar allt er komið á blússandi ferð verður það svona overwhelming.... En samt vill maður ekki hætta og þá líður manni eins og Nemó á fljúgandi rúminu.... Og svo gæti maður allveg verið fljúgandi því með augun lokuð veit maður ekkert hvað er að gerast! Ég las einhverntíma lýsingu á svona outside of the body lífsreynslum (maður var nú alltaf að reyna að galdra og svona) og þetta minnir svolítið á svoleiðis... en það er allveg sama hvað ég geri þetta lengi ég er alltaf ennþá uppí rúmi..... Mjög dularfullt....
Annars er mér óglatt (ástæðan fyrir því að ég fór uppí rúm), kannski borðaði ég eitraðan fisk áðan.... Miðað við allt ruslið sem er verið að dömpa í sjóinn hægri vinsti tel ég það bara allveg líklegt!!! Kannski fæ ég í allvöru að fara út úr líkamanum í nótt..... :O
Þegar ég er að læra hugsa ég svo mikið og eyði svo mikilli orku að ég borða u.þ.b þrisvar sinnum meira en venjulega. Ég var t.d. búin að borða tvisvar fyrir 10, og það var af því að ég var svöng ekki því ég hafði ekkert að gera....
Ég held að ef það væri hægt að virkja hugarorku háskólanema í prófum væri eflaust hægt að sjá þriðja heiminum fyrir rafmagni!! Ég ein er ábyggilega á við heila vatnsfallsvirkjun..... eins og ég segi; kárahnjúkavirkjun er óþarfi ;)
Nú er Eysa að koma bráðum svo ég þarf að hætta, en kannski geri ég meira sinna í kveld.......................................................................

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home