....Lyfleysan....

bull og vitleysa

mánudagur, apríl 12

Netið mitt er komið í lag!! Vííííííííííííí :)

Hvað er eiginlega málið með bíómyndir á stöð tvö þessa daganna?? Hákon kom til mín í gær og þegar við vorum búin að læra smá ákváðum við að kveikja á sjónvarpinu, Og var ekki verið að sýna þennan æðislega forvera matrix; Harley Davidson and Marlboro man.... Og gæjarnir voru actually kallaðir Harley og Marlboro. Og svo voru þeir hund-eltir af illilegum gæjum í síðum svörtum skotheldum leðurkápum, öllum vatnsgreiddum með þennan þvílíka svip, eða "ekki svip". Við Hákon skemmtum okkur ágætlega yfir þessu.... Vissuð þið að ef maður er skotin í skotheldri svartri kápu í brjóstið þá sveigist maður afturábak eins og gormur og svo til baka, allveg í jafn góðum fíling?? Mjög áhugavert.........

Ég er ekki lengur einn heima, nú er ekkert að óttast :)

Áðan hélt mamma að ég ætti afmæli næsta fimmtudag, é er soldið fúll útí pabba að hafa leiðrétt hana, kannski hefði ég annars fengið gjöf.... Ég á sem sagt afmæli eftir 10 daga ekki þrjá :) Ég er þá opinberlega komin á þrítugsaldur, og ég man nú allveg eftir því þegar mér fannst fólk sem var komið yfir tvítugt vera orðið svo gamalt að ef það væri ekki komið í fast samband og byrjað að búa og helst komið með börn gæti það bara drepið sig strax........ Nú er ég að móðga geðveikt marga :D Þá vil ég minna á það að þið voruð komin yfir tvítugt þegar mér fannst þetta... :þ

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home