....Lyfleysan....

bull og vitleysa

miðvikudagur, apríl 7

Núna er ég í undirbúningi undir meiri lesur með kaffidrykkju og svæsnum draumum um kökuna sem barn nr. 2 er að baka til að hafa með í sumarbústaðinn. Þegar hún lítur undan þegar kakan er í kólnun ælta ég að taka hana, hlaupa með hana á leynilega felustaðinn minn útí garði og sannfæra hana svo um að kakan hafi aðeins verið til í hennar eigin fantasíuheimi; hún hafi aldrei bakað hana í allvörunni. Svo ætla ég að leggjast í sukk og svínarí alla helgina..... :)

Það er e-ð mjög dularfullt að gerast í vatnaveröld fiskabúrsins míns þessa dagana.... Þeir sem til þekkja vita að það voru vandræði með óboðna lífveru í því um daginn (s.s þörung) en nú virtist hún hafa séð að sér og horfið á braut. En þegar ég vaknaði í morgun tók ég eftir því að allir gráu fiskarnir voru búnir að grúbba sig saman í eitt hornið og allir gulu fiskarnir í annað og mér virtist vera leynimakk í gangi. Svo þegar þeir sáu mig syntu þeir allir í sitthvora áttina og létu sem ekkert hefði í skorist.... Svo er ég búin að standa laxinn að því að vera að ryksuga nokkrum sinnum í dag, hann sést voðalega sjaldan gera það og hættir því alltaf er ég nalgast búrið til að rannsaka fyrirbrigðið nánar. Brjálaði fiskurinn er líka hættur að vera brjálaður. Svo var e-ð furðulegt drasl á floti í búrinu í morgun, en samt voru fiskarnir allir þarna, sem útilokar það að draslið hafi verið leyfar sprungins fisks (það hefur gerst!). Ég held að fiskarnir séu að plana að þróa með sér lungu og fætur og svo ætla þeir að taka yfir heiminn, starting with my room....

Annars er ég að spá í að halda áfram að nálgast Nóbelsverðlaunin, og svo ætla ég að hitta Mysinginn í kveld á prekinu......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home