....Lyfleysan....

bull og vitleysa

mánudagur, apríl 5

Note to self:

1. Ekki fleiri göngutúra með mömmu!

Ég er ennþá andvana og það eru tuttugu mínútur síðan ég settist hingað niður... Ég held að vér þurfum að farað drífa oss í ræktina. Reyndar var ég að hugsa því ég er nú komin í páskafrí og svona að fara í gönguferð eða sund eða jóga á morgnana í hálftíma, þá á maður víst að einbeita sér betur.... Annars aðhyllist ég aðeins eina tegund af líkamsrækt og hana má framkvæma á ýmsan hátt!! En svoleiðis er bara ekki á boðstólnum þessa stundina..... :(

2. Ekki keyra í inniskónum!!!

Þeir voru bara dettandi af mér hægri vinstri eins og þeir væru e-ð séhannaðir til þessa starfa.... Ég hefði getað valdið hræðilegu slysi með tilheyrandi blóðbaði og upphlaupi :O

3. Læsa sig einhverstaðar inni fram til 15. maí

That's the tough one......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home