....Lyfleysan....

bull og vitleysa

mánudagur, apríl 5

Okey, þá ætla ég að byrja á því að segja frá skrímslinu sem býr í miðvaskinum á kvennaklósettinu á miðhæðinni í VR II (eða VR-miðja ef fólk vill það heldur). Þetta er greinilega mjög miðjumoðað skrímsli.... Þannig var allavega mál með vexti að ég var í góðum fíling að þvo á mér hendurnar í umræddum vaski, þegar ég heyri kvalafullt væl koma úr iðrum vasksins. Nú, mér stóð nú ekki á sama, enda virtist skrímslinu ekki líða mjög vel þarna niðri, og hvern skal nú undra; ekki myndi ég vilja vera fastur oní einhverjum ógeðslegum vaski inná illalyktandi salerni fyrir vannærða háskólastúdenta (ég hef ýmislegt að segja við ræstingafólkið sem þrífur hérna, það hlýtur að vera illa launað). Eftir nokkur orðaskipti við skrímslið, sem er by the way fjólublátt með gulum og rauðum doppum, sannkallað páskaskrímsli, komst ég að því að það hét Rassmus rauðibelgur og var sent hingað frá plánetunni sinni í Krabbaþokunni til þess að koma mannkyninu í skilning um að hingað til jarðar væri á leiðinni risastórt geimskip fullt af ljótum geimverum frá nágrannaplánetu þeirra, sem ætlaði að grilla okkur yfir opnum eldi eins og sykurpúða í skátaútilegu. Nú, eins og gefur að skilja varð mér um og ó við þessar fréttir, og hét litla skrímslinu að bjarga því úr prísundinni og hjálpa því að koma skilaboðunum áleiðis til annarrra. Hvernig það hins vegar komst í vaskinn er önnur saga, en það kom hingað um miðja nótt í gær, og þótt háskólastúdentar séu allmennt ruglað lið þá er okkur víst bannað að vera í skólanum á nóttunni. Þannig að þegar Rassmus rauðibelgur sá silfurskottu hlaupa ofan í vaskinn gerði hann að sjálfsögðu ráð fyrir að þarna væri mannvera á ferð og elti!! Og eins og vill stundum gerast, getur maður ekki togað puttann úr flöskunni þegar maður hefur einu sinni troðið honum ofaní...... Svo núna er aumingja Rassmus fastur þarna í vaskinum eins og skrattinn í sauðaleggnum og kemst ekki út á meðan heimsendir nálgast [eins og] óðfluga.... :o

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home