....Lyfleysan....

bull og vitleysa

þriðjudagur, maí 25

Í dag er:

þjóðhátíðardagur Jórdaníu
Handklæðadagurinn (getiði hvar...)
Byltingardagurinn í Argentínu
Jórdaníudagurinn í Ástralíu
Teppadagurinn í Turkmenistan
Týndir krakkar dagurinn í BNA

Þetta fann ég
  • Hérna
  • . Ýktað sniðugt :)

    Í nótt var ég andvaka allveg heví lengi. Þáð var þannig að ég sofnaði um miðnætti og vaknaði síðan klukkan eitt og gat ekkert sofnað aftur!! Þegar ég var búin að liggja smá þá ákvað ég að fá mér að borða því mér var illt í maganum og fékk mér (soldið mikið) að borða og þá var mér bara ennþá meira illt!!!!
    Svo loksins tókst mér að sofan eftir mikla mæðu, ég held reyndar að ég hafi misst meðvitund úr kvölum, og ekki vaknað svo aftur fyrr en um hádegi daginn eftir eftir HRÆÐILEGAN draum!! HRÆÐILEGAN HRÆÐILEGAN HRÆÐILEGAN draum!!!!
    ég er í svo miklu andlegu áfalli ennþá að ég vill ekki tala um það, en hann innihélt próf, fyrrverandi kærasta, skrýmsli og flótta!! Og svona kremjitilfinningu og ég gat ekki lesið :(
    Hann var HRÆÐILEGUR :'(

    Í gær fór ég á kaffihaus með Maríu og Ragga vini hennar sem hljóp svo allt í einu út án þess að kveðja kóng né prest (mig) og Einari og vini hans sem voru fullir.
    Það var ágætt :) Kannski er það kaffiþamb sem lætur mig sofa illa.......

    Svo er ég að reyna að heimta aðrar alþingiskosningar núna, því ég sé mér leik á borði.... Getur ekki einhver byrjað með undirskriftarlista??

    Leynilegi lesandinn sem ég hélt að ég væri komin með var bara Ingvar, mér finnst hann dóni. Reyndar erum við Helga búnar að komast að þeirri niðurstöðu að allir sem eru upp í skóla eru dónar nema Eðlisfræðikennarinn og kannski krakkarnir sem vinna upp á Raunó....
    Ég er ekki sáttur.

    Ég er svangur og ég veit ekki hvað ég á að gera í dag..... Mig langar ennþá að mála, bara veit ekki allveg hvað...... Murf....

    Anita vinkona mín er að fara til Danmerkur sem au-pair eftir 3 vikur. Það verður geðveikt gaman hjá henni :) Mig langar í útlönd....

    Æi ég er að spá í að gera e-ð af viti.... Ég er búin að missa af Nágrönnum nei!!!!!

    Ég óska öllum góðs teppadags:)

    0 Comments:

    Skrifa ummæli

    << Home