Í dag gerði ég mesta góðverk sem ég held að ég hafi gert um ævina:)
Þannig var það að fyrir tvemur dögum komst þessi stærðarinnar býfluga inn, og við erum að tala um ferlíki á stærð við fugl. Eins og flestir ættu nú að vita eru býflugur ekkert gífurlega gáfuð dýr, og þess vegna flaug hún ekki aftur út heldur fór beint upp í hæðsta gluggann í húsinu og lét þar eins og vitleysingur.
Þeir sem mig þekkja ættu nú að vita að býflugur eru uppáhalds hjá mér, og því hafði ég miklar áhyggjur, því þær lifa mjög stutt innandyra. Ég var búin að skipuleggja heljarinnar rescue plan í gær en svo vildi hún ekkert fljúga þá svo... Ég var eiginlega búin að gefa greyið fluguna upp á bátinn þegar ég sá hana liggjandi á gólfinu beint fyrir framan stigann áðan, og hélt þá að hún væri nú loksins dáinn greyið. Ég fór og náði mér í blað til að setja hana út, en þá hreyfði hún sig!! Ég að sjálfsögðu hljóp með hana niður og lagði hana fyrir framan útidyrnar, og prófaði að gefa henni smá vatn. Ekki sýndist mér hún vilja það svo áhyggjur mínar jukust enn. Hvernig gæti ég nú gefið henni næringu, hún var orðin svo orkulaus að hún gat ekki flogið lengur. Þá datt mér í hug það snjallræði að gefa henni sykurvatn, og viti menn!! Hún svolgraði það í sig og er öll að braggast!! Er byrjuð að standa upp og labba aðeins og svona....
Ég er svo glaður!!!! :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home