....Lyfleysan....

bull og vitleysa

fimmtudagur, maí 13

Þetta er ömurlegt blogg, það er ekki hægt að skrifa það sem maður er að hugsa, þá vita það allir. Og það fær engin að vita hvað ég hugsa, nema útvaldir, og hinir útvöldu eru... látum okkur sjá... ég. Og kannski þeir sem hugsanirnar eiga að fara til, en það eru ekki allir.
Mér líður stundum eins og ég sé föst inní kassa, sem er alltaf að minnka og minnka og mun á endanum kæfa mig eða kremja til dauða. Og hann er orðinn helvíti lítill núna, og ég er hættur að geta hreyft mig. Áður gat ég allavega hlaupið milli horna, þó svo að auvitað myndi koma að því að ég yrði föst. Svo er ég sár, það meiðir mig.

Ég er búin að vera að hugsa mikið um 050505 barnið og húsið undanfarið. Ég vildi að ég gæti hætt því.

Ég ætla að reyna að drekkja hugsunum mínum í lærdómi, en af gefinni reynslu á ég ekkert eftir að læra neitt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home