Fór og náði í myndir áðan úr framköllun... alltaf gaman að ná í gamlar myndir :) Ég reyndar hélt að þetta væru aðallega djammyndir, en svo reyndist ekki vera, heldur voru þetta myndir af köttunum mínum og þyrlunni blessuðu og mér vafinni inn í klósettpappír..... Af hverju í andskotanum vorum við aftur að því?? Það samræmist ekki beint skoðunum mínum um óþarfa pappírseyðslu.....
Amma mín á ammli í dag, ég fór í heimsókn þangað áðan og tróð ofan í mig fullt af rjómakökum og kaffi (ég er með blóðþrýsing núna) og drullaði aðeins yfir einræsiðherra þessa lands. Woe to you sem kusuð fíflið!! Þið látið þetta ykkur vonandi að kenningu verða! Vonandi engin sem les þetta blogg samt..... :)
Mig langar svo að mála að mig klæjar allveg í puttanna... Veit bara ekki allveg hvað, og svo er svo mikið vesen að koma þessu öllu upp! Ég kannski bara sest út með akríllitina, það er þægilegra (þeir eru heldur ekki margar vikur að þorna)....
Jú ég veit hvað ég geri!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Haha!!
Svo er geðveikt mikið sem ´´eg á eftir að lesa og svo langar mig að sauma líka og fara eitthvert út á land í ósnortna náttúru...
Svo langar mig líka að vera úti hjá Hákoni, ég er nú meiri aulinn. En það er of seint að vasast í því núna... :(
Ef ég myndi ekki byrja svona snemma að vinna myndi ég fara vestur með Pálu og Ronju, það væri næs, fá aðeins smá breik...
Annnars er planið að klára áfengið sem við kláruðum ekki núna næstu helgi, og rifja upp gamla tíma á sirkusnum góða :)
Merkilegt hvað maður leitar í sama lið þótt maður sé ekki búin að fara þangað í hálft ár eða eitthvað.....
Fruss :þ

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home