Ég er búin að eignast nýjan vin. Barn nr. 1 hafði svo miklar áhyggjur af geðheilsu minni eftir lestur undanfarins mánaðar að hún teiknaði andlit á melónu og gaf mér. Hann heitir Wilson :)
Það virðist vera e-ð missjon hjá fjölskyldu minni að hræða úr mér líftóruna núna þessa daganna. Barn nr. 1 er farið að taka upp á því líka að koma mér á óvart með hinum ýmsu matartegundum (um daginn var veifað framan í mig spagettíi og öskrað ORMUR!! og ég nóttla bara ran for my life...). Núna sat ég í góðum fíling þegar það kemur frosinn fiskur í heilu lagi mér að óvörum með tilheyrandi skrýmslahljóðum. Ég meina, hvað á maður að gera!??
Mig langar út í góða veðrið. En ég þarf víst að massa 100 síður í stærðfræði í dag svo það er borin von.... :(
Mér heldur áfram að leiðast þrívíddin, en eftir uppgvötun mína með 26 víddirnar hef ég engar áhyggjur af þessu, er bara fegin á meðan ég þarf ekki að reikna í þeim... Kannski útskýri ég kenninguna mína á skjáum þessa bloggs en ég veit ekki.... Einhver gæti stolið henni og þar með nóbelsverðlaununum mínum!! :o En ég er búin að pæla mikið í kenningunni og ég aðhyllist hana alltaf meir og meir....
Pálína á afmæli í dag, við Wilson óskum henni til hamingju með það :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home