Ég er að fara á Pixies ligga ligga lái.... :D
Í morgun vaknaði ég upp við vondan draum (bókstaflega, en það er ekki það sem ég ætla að segja frá), það var ekki kalt vatn heima!!! Þegar ég ætlaði að stíga inn í sturtuna í morgun, eða í dag væri kannski nær lagi, þó tók ég eftir að það rauk allveg geðveikt úr henni, og það bíttaði engu þó ég setti vatnið á kaldasta.... Ég gerðist frekar örvæntingarfull þar sem ég þurfti nauðsynlega að þvo á mér hárið og svona, og lét renna smá í bað og ætlaði að bíða þangað til það kólnaði, sem gekk síðan frekar hægt, og vatnið var ennþá brennandi eftir klukkutíma (og þetta var ekki mikið vatn). Ég var allveg farin að láta mér detta í hug að banka hjá nágrönnunum og spyrja þá hvernig kaldavatns-statusinn væri hjá þeim, en svo kom vatnið aftur og núna líður mér mun betur :)
Ég er reyndar farin að hafa áhyggjur af því að mín viðkvæma húð sé farin að þróa með sér e-ð óþol gegn heitu vatni, því ég er alltaf öll út í rauðum blettum og útbrotum sem mig klæjar í þegar ég kem úr sturtu :o Þetta er farið að nálgast það að vera eitthvað bláa lóns dæmi (þeir sem til þekkja vita að bláa lónið er sá staður sem ég forðast mest af öllum á þessarri jörð!) Mig klæjar meira að segja ennþá ég er ekki sátt!!!
Ég etr að spá í hvort ég eigi að segja frá draumförum næturinnar, það gæti orðið svolítið löng lesning.... Annars er ég að spá í að halda draumadagbók þar sem hin dagbókin sem ég ætlaði að halda floppaði smá, hún inniheldur allveg tvær nokkurra lína færslur frá þessum mánuði....
Annars er ég að íhuga að fara að hringja í pála og finna út úr hvernig við förum á þessa tónleika, ég neni eiginlega ekki að vera að ná í liðið niðrí bæ þar sem ég bý í 15 mín. göngufjarlægð frá tónleikastaðnum......
MUHHAHAHHAHAHHAHAHHAHHAHHAHHAHAHAHAHAHHAHAHAAAAAAAAAAaaaaaaaaaaaaaaa...............

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home