....Lyfleysan....

bull og vitleysa

sunnudagur, maí 2

Hugsið ykkur hvað það væri nú þægilegt ef heimurinn væri tvívíður?? Þá væru allir heví mjóir og eingin hætta á því að fara á mis við fólk, þar sem allt væri bein lína :D Gæti samt verið svolítið erfitt að mætast.... Nema allir hefðu sína eigin línu til að vera á, og því væri til óendanlega margir "sub"heimar í þessum heimi. Þá myndi mannkynið samt deyja fljótlega út þar sam maður myndi aldrei hitta neinn annan.... Maður myndi líka deyja úr hungri því öll dýrin og blómin væru flöt, allveg eins og þau hefðu lent undir valtara sem flatti þau óendanlega mikið út....
En þá myndi maður heldur ekki þurfa að reikna í þrívídd, sem hefur ótvíræða kosti fram yfir galla flatlandsins sem áður var lýst:D:D:D:D
Ég held að djöfullinn hafi fundið upp rúmið og alla vísindamennina sem finna upp e-ð drasl og gera mér svo lífið leitt!! Ég er ekki sáttur, og ég er þreyttur og vangefinn eftir andvöku næturinnar... Veit ekki hvað er að koma fyrir mig :o
Ég er meira að segja það illa upplagður að ég man ekki jöfnu beinnar línu, svo hvernig er hægt að ætlast til þess að hetjan reikni e-ð í þrí-eða fleiri víddum??

Mér finnst þetta stakasti dónaskapur, og alllir eru hættir að blogga í tilefni prófanna svo að ég get ekki einu sinni hangið í plastdraslinu er tölva kallast!!

Í nótt dreymdi mig að efnafræðin ætti sumarbústað (sem var okkar) og þar var fullt af spilum. Sumarbústaðurinn var staðsettur upp á hólnum fyrir aftan letigarð og það var skip fyrir aftan hann. Svo allt í einu var ég komin upp í risastóra hvíta limmósínu með Krumma í Mínus og Danna á fyrsta ári. Krummi var að keyra og henn keyrði eins og óður maður alltaf á móti einstefnum og í svolitlum bíómyndafíling þar sem hann horfði aldrei á götuna og gat sikksakkað á milli bílanna og svona (ath limmósínan var HUGE). Allt þetta átti sér stað í furðulegum heimi þar sem umferðarskiltin voru svort og hvít og mikið af ljósum og dæmum. Eins og ég segi, bíómyndabragur. Svo endaði ferðin, mér til mikils léttis heima hjá Krumma, en hann bjó í einhverri ógeðslegri blokk sem væri helst í ætt við Breiðholtið. Svo var hann að reyna að fá mig inn með sér og e-ð en ég vildi það ekki, og við Danni freistuðum þess að stinga af á limmunni, en Krummi náði lyklunum og hljóp með þá inn, og minnti mig í leiðinni á hjólbeinóttan dverg úr ævintýri. Og svo vaknaði ég, allt of seint að venju.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home