ó hvað það er ljúft að vera í fríi...... Í dag vaknaði ég hálf eitt, litaði á mér hárið í rólegheitunum og rölti síðan niður í bæ í góðum fíling, ég hékk á kaffihúsi fram til sjö... Svona á þetta að vera!!
Hitti líka Loft, allveg á rassgatinu niðrí bæ með róna... mér þótti það leiðinlegt, þetta er góður strákur; allavega var... :(
Á laugardaginn var heeeeví stuð!! Hetjan massaði eins og eitt stykki próf eftir þriggja tíma svefn, og fór síðan heim að tilbúa Eurovision-ammælis-próflokapartý Esterar og Pálu.Það rifjaðist reyndar upp fyrir mér af hverju ég hef ekki horft á Eurovision síðastliðin 10 ár..... En hvað um það, við páls vorum að djamma saman í fyrsta skipti í eitt og hálft ár og þarna voru sko gamlir tímar rifjaðir upp! Og hetjan dugði allveg til sex.... I never would have thought.... Gerði meira að segja heiðarlega tilraun til að labba heim en hætti við fyrir utan Lansann, sem betur fer kannski.... :)
Búin að fá vinnuna mína á hreint, á að vera vaktsjóri á vakt 3 á Olís í graðabæ, byrja 26. maí og hætti um miðjan ágúst.
Jess sörrí baberínó eins og Danni myndi segja.
Svo er það bara fótboltinn í sumar, ef ég get rifið mig upp úr ljúfa lífinu að liggja heima og lesa allan daginn :)
Á þessu bloggi verður mikið um hin ýmsu persónuleikapróf, þar sem ég hef fengið formlega kvörtum þess efnis að ég sé illskiljanleg og unpredictable. Svona er þetta bara....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home