....Lyfleysan....

bull og vitleysa

laugardagur, maí 1

Í nótt var ég aftur andvaka, og í þetta skipti í langan tíma. Ég reyndi að nálgast hugsanir mínar frá öðrum hliðum, og það skilaði sér bara ágætlega. Í dag er mér ekkert búið að takast að læra þótt ég sé búin að reyna, ég get ekki einu sinni reiknað einföld og heimskuleg dæmi. Ég er farin að sjá það að það var heimskuleg tímasóun að byrja aftur í skólanum. Og ekki vera að leggja á ykkur að reyna að segja mér annað, ég hlusta hvort eð er ekki.
Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá er búið að vera slökkt á símanum mínum í einhverja daga núna, það er vegna þess að ég nenni ekki að þurfa að tala við annað fólk. Ég kannski kveiki á honum aftur ef ég skipti um skoðun.
Helga ég held að þú hafir verið búin að fá hjá mér dæmatímann, ég kíkti á hann og hann var voðalega götóttur e-ð... En annars máttu sækjann þegar þú vilt, ég er alltaf heima...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home