....Lyfleysan....

bull og vitleysa

föstudagur, maí 28

Okey ég bara stenst ekki mátið að monta mig......

ÉG VAR HÆÐST Í STÆRÐFRÆÐI!!!!! :o
Reyndar með allveg fáránlega lága einkunn samt en hey!

Svo lenti ég í hræðilegri lífsreynslu í gær, sem reyndar leiddi gott af sér. Þannig var, að ég var latur og ákvað að taka strætó í vinnunna. Þar hitti ég hana Önnu gömlu vinkonu m+ina síðan úr gaggó og var að ræða við hana um heimsins mál. Og þá fann ég mér ballettfélaga!! Hún sagðist vera komin með einhverja nýlega dellu fyrir ballett og ætlaði að fara að æfa í vetur, og þar sem ég hef alltaf verið með ballettdellu og var að spá í að fara að æfa í vetur líka sá ákváðum við að slá saman :D
Svo bilaði strætó (típíst) og við þurftum að hlaupa, hún í strætó og ég í vinnunna og þá komst ég að því að ég er í ÖMURLEGU formi!! Var allveg í andnauð í hálftíma á eftir þessa 300 m sem ég hljóp eða e-ð. Svo ég VERÐ að fara að gera e-ð mér til heilsubótar áður en ég enda í hjólastól :s

Já, skyldan kallar; Nágrannar í tellíinu :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home