....Lyfleysan....

bull og vitleysa

laugardagur, maí 1

Um daginn hélt ég að ég sæi gömlu kisuna mína (s.s Litlalíus, þessa sem ég gaf).
Þessi kisa var allveg eins og hann; allveg svört með hvíta sokka og hvítan smekk, en samt vildi hann ekkert koma og tala við mig þegar ég var að kalla á hann. Svo í gær, þegar ég var að fara að passa þá var hann aftir úti, en svo kom einhvert fólk og kallaði á hann með nafninu Emil. Svo þetta var ekki Litlilíus.
Ég vona að Litlilíus hafi það gott, hún virtist allavega góðleg konan sem fékk að eiga hann. Ég vona líka að hann hafi ekki brotið neitt heima hjá henni, og hafi ekki verið hræddur. Hann var alltaf svo hvekktur greyið.
Hann var fín kisa.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home