Action-hero-ofurhetjan!!
Í gær fór ég að sjá tilvonandi mág minn leika listir sínar í bíóhúsum borgarinnar í The chronicles of the riddick. Og þótt ótrúlegt megi virðast, þá er þetta allveg mögnuð mynd!! Söguþráðurinn alls ekki sá versti, geggjaðar tæknibrellur og mikið af hot kvenfólki (og svo auðvitað mágurinn en hann er í einkaeigu). Núna erum við María búnar að ákveða að fara að læra box, og svo ætla ég að fara að læra að berjast action-hero style. Djöfulli verður það endalaust töff!!!
Svo er ég að spá í að reyna að breyta útlitinu á þessu blessaða bloggi ef ég finn út hvernig það fer fram....
Og Pála er komin heim !!! Vei!! Get ég farið að leika við einhvern annan en Maríu gellu líka ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home