....Lyfleysan....

bull og vitleysa

þriðjudagur, júní 15

Ahhhhh..... Ég er ekki búin að gera neitt nema bara sofa og sofa og sofa...... Það er svo GOTT !!! Ester sofistelpa :þ

Annars er ég geðveikt ósátt! Ég asnaðist til að taka að mér aukavakt annað kvöld, og svo seinna sé ég að ég er búin að fá bréf frá Íslandi-Palestínu um fund með sendiherra Palestínu á morgun kl. átta! Þar sem ég kemst augljóslega ekki :'( þá hvet ég allt hugsandi fólk til að fjölmenna í Norræna húsið og standa þannig með þeim sem minna mega sín gegn hryðjuverkum Ísraelstjórnar!
Og fyrst ég er á annað borð komin í ham þá vil ég líka segja að ríkisstjórn vor ætti að fara fjandans til ásamt einræðisherrunum og alheimslöggunni í bandaríkjunum.

LIFI LÝÐRÆÐIÐ!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home