Það er komin könguló fyrir utan gluggann minn í vef, ég er ekkert voðalega sátt við það. þetta er samt sem betur fer ekki glugginn sem er hægt að opna. Og hún er eiginlega out of reach til að hægt sé að drepa hana... Svo veit ég ekki hvort e´g gæti það, ég nefnilega var að skúra um daginn og það var könguló inni, og ég auðvitað hljóp og náði í hreinsiefni og drap hana þannig, en svo fékk ég rosalegt samviskubit þegar ég horfði á greyið reyna að skríða upp úr leysigeislapollinum sem ég var búin að búa til handa henni. Kannski er ég að linast í harri aftöðu minni gagnvart ógeðslegustu kvikindum í heimi? En ef einhver treystir sér til að mæta heim til mín og losa mig við kvikindið lifandi, þá er það vel þegið, því ég get ekki hugsað þá hugsun til enda ef hún kemst inn :s
Svo er ég líka eiginlega orðin soldið hrædd við fiskana mína, ég er alltaf að slá því á frest að þrífa búrið þeirra.... :s
Ég fór á allveg magnaða mynd í gær, The butterfly effect. Ég mæli með henni við alla sem hafa gaman að myndum sem mikil pæling liggur á bak við.
Bergur systir fór til útlanda í morgun og verður í fimm vikur (svindl) þannig að ég hef engann til að knúsa og klípa í kinnarnar á í langan tíma :(
En já, ég er að spá í að fara til afa og ömmu og borða yfir mig af kökum, og svo finna einhvern sem nennir að leika við mig í kvöld, nema ég leiki bara við bókina mína... Svo er ég að fara á þrjár kvöldvaktir, og öllum er velkomið að koma í heimsókn :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home