....Lyfleysan....

bull og vitleysa

miðvikudagur, júní 2

Ég var að taka próf um hvaða movie villian ég væri og: Nýjasta ég er Freddy Kruger, hrikalega ljót, með hnífafetish og drep lítil börn og nágranna mína. Reyndar er ég er ekki voðalega sátt þar sem ég vildi vera undurfögur norn sem drepur elskuhuga sína og alla sem standa í vegi hennar með eiturblöndum og álögum......
en hey, það verður að bíða betri tíma... Allavega þangað til ég er búin með eiturefnafræði næstu jól :D
Þá þarf fólk fyrst að fara að vara sig!
Ég er allveg að rifna úr leiðindum í vinnunni, og alltaf þegar ég mæti á morgnanna er tölvukerfið bilað á einhver hátt. Og í morgun var það líka posinn og KAFFIVÉLIN!!!
Það er bara ekki töff!!
Ef hlutirnir verða eins á morgun þá geng ég út!!! Nenni þessu ekki!
annars hef ég voða lítið að segja svona, djammaði aðeins um helgina, það var svona allt í lagi jájá. Svo er ég alltaf að vinna og þegar ég er ekki að því þá er ég á kafi í bókinni minni (sem ég vildi óska að væru skólabækur :s)
Vá ég hafði voða mikið að segja í gær þagar tölvan var biluð.... Drasl!

Annars er ég með tvenn skilaboð:
HÁKON, SÍMANÚMERIÐ ÞITT ER ANNAÐ HVORT VITLAUST EÐA ÞÚ ERT ALLTAF MEÐ SLÖKKT Á SÍMANUM ÞÍNUM. ÉG ER BÚIN AÐ REYNA AÐ SENDA ÞÉR SMS! SEGÐU MÉR LÍKA E-MAILIÐ ÞITT, ERTU MEÐ BOLIVIU??

EINAR, ÞÚ FÆRÐ EKKI FRÍTT KAFFI HJÁ MÉR Í VINNUNNI, ÞÚ ERT BÚIN A FYRIRGERA RÉTTINUM TIL ÞESS MEÐ ÞVI AÐ KOMA EKKI Í HEIMSÓKN. Þessum skilaboðum hefur reyndar verið komið áleiðis til viðkomandi aðila. ÞÚ SKALT SKO FÁ AÐ SLEIKJA MIG UPP ÞANNA! ;)

Ég eygi nýjar alþingiskosningar, við pála bíðum æsispenntar.
Ég er reyndar búin að lenda í einum slagsmálum í vikunni sem áttu uppruna sinn í löngum stjórnmálaumræðum. Svona eru þessir sjálfstæðismenn, verða að beita handalögmálum því engin eru rökin.....
Já b.t.w ég vann tvisvar!! Reundar var þetta allt í gamni gert en hey!! Ég er soldið marinn (hann fékk "glóðurauga" og óhuggulegt bitfar þegar ég reyndi að bíta í slagæð, áður en áþverrabrögð voru bönnuð) Svona er ég sterkur :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home