Í gær fór ég á mjög áhugavert djamm. Byrjaði heima hjá Gabe, þar sem var fámennt en góðmennt, og aðallega bara 3. árs nemar og ofar fyrir utan okkur Helgu og svo Eysu seinna meir.....
Tókum síðan taxa niðrá Glaumbar þar sem Vigga og Stína voru að halda upp á afmælið sitt og tókum þar nokkra dansa. Síðan var haldið rakleiðis upp á við og á Dillon með stuttri viðkomu á 11 og Sirkus, þar sem ég by the way þekkti engan.Við sátum þar í smá stund og það var farið að svífa verulega á mann þegar við ákváðum að rölta á Vegamót og reyna að finna Guðrúnu. Og þá gerðust undur og stórmerki. Ég hitti sætasta sætasta sætasta strák í heimi, hann Jónas!! Og lét hann auðvitað ganga mér úr greipum eins og alltaf :( Svona er ég mikill auli....
Á þessum tímapunkti fór Eyrun heim og við helga ákvaðum að fara á alla skemmtistaði í bænum. Þannig að við byrjuðum á LA kaffi og tókum hring þar, frekar súr staður. Fórum svo á Sirkus, 22, sólon, Nelly's (díses kræst...) Felix, þar sem helga sá voða sætan strák sem reyndist svo vera herra ísland :D, De boomkikker, Prikið, palace, ópus-litaver og bara allt! Ég man ekki hvað þetta heitir allt saman, en þetta var mjög gott innlegg í rannsókn mína á öðru fólki.... Flesta þessa staði hef ég aldrei komið inn á áður :)
Svo töltum við Helga og tókum taxa heim, og ég reis úr rekkju hálf fjögur daginn eftir :)
Núna er ég líka bara í stuði til að liggja og gera ekki neitt, en ég er að spá í að lesa samt í bókinni minni :) ég er orðin svo mikill bókaormur að það er ekki normalt.
Þetta er samt soldið súrt, ég er búin að vera á morgunvakt síðustu fjóra daga, og dagirinn í gær er fyrsti dagurinn sem ég vandist því, gat allveg sofnað á kvöldin og svona, og þá er törnin búin!! Nú get ég aftur snúið sólarhringnum við og aftur lent í krísu þegar ég fer næst á morgunvakt.... Æðislegt allveg.
Ég vildi óska að ég væri ekki svona södd, mig langar svo að borða einhvern ógeðslegan mat, og liggja síðan upp í rúmi og kúra eða lesa... Veit bara ekki um neinn sem vill leika við mig núna, svo er ég líka að fara í matarboð í kvöld og svo að hitta Anitu, því hún er að fara út bráðum, heppin.
Svo held ég að málið sé að fara að massa þessi sumarpróf, en ég geri það á morgun eins og alltaf bara :)
Ég hef reyndar ekkert að segja nema kannski æsispennandi sögur úr vinnunni eða pælingar út frá bókinni minni, svo ég er að spá í að láta bara staðar numið hér.
Ef einhver vill leika við meig einkutímann þá má hringja í mig.
Svo er hr. Einar búin að bæta fyrir syndir sínar og koma í heimsókn til mín, hann er aftur orðin vel séður ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home