Stjörnuspáin mín í gær sagði að það sem ég keypti mér (í gær) myndi verða mér til mikillar lukku. Svo ég fór og keypti mér nærföt, OG MIKIÐ AF ÞEIM!!
Nú er bara að bíða eftir lukkunni, sem stjörnuspáin í Cosmo sagði að ætti að vera career-lega í gær og svo myndi ég hitta einhvern fjallmyndarlegan ungan mann 12. (þar koma nærfötin eflaust inn) og svo myndi e-ð fara að gerast svona í kringum 19. í svoleiðis málum.
Það er semsagt svona lítið sem ég hef að gera í vinnunni...........
Mig dreymdi undarlegan draum þar sem ég var með fullt af fólki, þ.á.m. Elínu og Einari að stela vopnum og fíkniefnum frá bófum, og þeir voru að elta okkur. Ég var í rosalega góðu formi og gat klifrað upp hús og svona, sem síðan gátu beyglast eins og tré í vindi.... Allt mjög undarlegt, og ég veit ekki ennþá hvort við komumst undan með stuffið!!
Svo var næst draumur þá var ég í húsi sem var úr tré með flagnaðri málningu og þar voru fullt af undarlegum myndum af fólki..... Mjög dularfullt..... Það var líka manneskja þar sem hét Heiða, en ég þekki enga Heiðu nema systur Helgu, og þetta var ekki hún.... Ég vona bara að þetta hefi ekki verið fyrirboðadraumur eða eitthvað þannig því hann var svo spúkí.... Kannski deyja allir á myndunum, það eru þá ég, Begga systir, Eyrún og einhver einn sem ég man ekki hver er. En annars hef ég aldrei verið berdreymin svo....
Hákon er komin heim frá Frakklandi. Það var víst ráðist á hann einkutímann þegar hann var að labba heim af djamminu og svo vaknaði hann bara á spítala fótbrotinnn og eitthvað þvílíkt dæmi, og er komin heim í bili.... Fer kannski aftur út svo í júlí.
Frekar óhuggulegt samt....
Nú er ég komin með nýja auglýsingu þar sem ég auglýsi eftir fólki: Hver vill koma með mér að æfa ballett í vetur????

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home