fór á djemmið í gær, loksins loksins eftir allt of langa pásu!! Fór með Pálinu og Gunnhildi í bæinn , þar sem við hittum svo Eyrúnu og Jón Val, og héldun þá á hinn mæta stað 22 en og svo oft áður og dönsuðum eins og ótt fólk. Svo þurfti herra Pála að fara heim og hin voru öll farinn svo ég mælti mér bara mót við þá Dag og Odd (Oddur var ískyggilega drukkinn og fór heim skömmu seinna) svo við Dagur skelltum okkur bara á Pravda í hallærisdansakeppni. Dagur er töffari.
Og núna er ég bara óhuggulega þreytt, þó ekkert þunn sem mér þykja tíðindi :þ
Sit bara núna í góðu yfirlæti heima hjá Villimeynni minni, núbúin að láta konuna elda oní mig æðislegan mat og hlakka mikið til að fá grillaða banana með lúkkusaði og rjóma. Namminamminaimmi!!
Annars er voðalega lítið í fréttum, búin að segja upp í vinnunni, bara 3 morgunvaktir og 7 kveldvaktir eftir, þá tekur bara við lærdómur dauðans og svo tveggja vikna fillerí og hangs þangað til skólinn byrjar. Þannig að ef einhver er aðgerðarlaus mlli 17. og 30. ágúst, þá er ég það líka :)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home