Helgin hjá mér er búin að vera ROSALEG !!! Þótt hún hafi verið vinnuhelgi :þ
En first thing first:
Föstudagur: Ekkert, leiðinlegt.
Laugardagur: Var að vinna um morguninn og ákvað svo að skella mér með Önnu Pálu í´"útilegu" á vegum UVG (sem er ungliðahreyfing vinstri grænna fyrir fáfróða) en Anna Pála er einmitt í stjórn þar.
Stemmarinn byrjaði að sjálfsögðu í rútunni þar sem allir virðast kunna á gítar. Þegar komið var í hvalfjörðinn grilluðum við pylsur og annað fyrir fólk sem borðar ekki svoleiðis, en það skal tekið fram að kvenkyns grænmetisætur voru meirihlutahópur.
mikil tilraunastarfsemi var í gangi hjá mönnum (a.k.a Degi) og gerði fólkið (s.s Dagur) þá uppgvötun að pylsur með sunquick eru hið mesta lostæti!! Og það er einnig bjór með sunquick, en það prófaði undirritaður prívat og persónulega (eftir ábendingu frá Degi). Svo var farið út í leiki og fótbolta, þar sem stjórn UVG var rústað af Múrnum. Að því loknu var haldið í hús og farið í drykkjuleik. Sem er nú ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Fröken Anna Pála ákvað að hún þyrfti að reyna að koma mér út þegar hún fékk að láta einhvern velja sannleikann eða kontor og skipaði umræddum sunquick-fetish manni að vippa sér úr að ofan og kyssa mig á munninn! Þrátt fyrir ungan aldur vílaði hann það ekkert fyrir sér og smellti á mig einum.... Og þótt það hafi ekkert verið neitt almennilegur KOSS þá mátti greina hæfileika sem kraumuðu undir. En ég Anna Pála klikkaði aðeins á aldrinum þarna því stráksi er rétt að skríða yfir 18 ára takmarkið....
En hvað um það, það hindraði okkur ekki í að fara í bæinn saman eftir heimkomuna og hræða aðeins líftórunna úr liðinu, ég í alltof stórri lopapeyu með palestínusjalið mitt og hann leðurklæddur frá toppi til táar með sítt ljóst hár og í rauðum bol sem á stóð frjáls palestína. Það var soldið mikið horft, en hverjum líkar ekki athygli :þ
Og þá komum við að merg málsins: Ég ætla að fara til Palestínu í jólafríinu með Degi og Höllu!! Og það var ekki einu sinni mín uppástunga að koma með :D
Já svo fórum við á kaffi amsterdam og þar var mikið um róna og ég sá tvær mellur. Það hef ég aldrei áður séð á íslandi :s
Sunnudagur: Vinnu um morgunin og svo METALLICA!!
Og það var geðveikt geðveikt geðveikt geðveikt!! Verst bara að þegar mín var búin að troða sér allveg upp við sviðið og búin að slamma eins og óð manneskja í þrjá tíma var maður orðin frekar þyrstur og loftlaus, og það var ákkurat þegar Guðirnir áttu að fara að spila að ég gat þetta ekki lengur og þurfti að fara að að reyna að lifa þetta af annarstaðar. Gæslumennirnir voru svo vænir að hella í mig tvemur lítrum af vatni eftir að hafa hlegið að brjálaða þungarokkaranum sem var ekki á þurr þráður og gat undið á sér hárið. Þetta var rokk..... Betra en besta fullnæging og hverrar krónu virði!!
Og þetta er lengsta blogg sem ég hef skrifað, og ég efast um að einhver nenni að lesa það, takk fyrir það

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home