Núna í tilefni dagsins ætla ég aðeins að valta yfir hið merkilega blað DV.
Þannig er mál með veksti að þegar ég loksins drulla mér á lappir á föstudaginn held ég alveg örugglega blasir við mér á forsíðu moggans allveg stórmerkileg frétt: Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur úrskurðað palestínumönnum í hag, og ísralear eiga að rífa múrinn (að sjálfsögðu skilaði bandaríski dómarinn inn séráliti þar sem hann lýsir því yfir að múrinn sé í góða lagi, og það finnst forsetaframbjóðandanum John Kerry líka, og að sjálfsögðu hafa Ísraelar lýst því yfir að þessu ætla þeir ekki að sinna).
Svo fer ég í vinnuna og skoða DV eins og alltaf þegar ég er í mat, og viti menn! Ekki STAKT ORÐ!! En það eru að sjálfsögðu heilsíðufréttir um fólk sem hefur misst 4 kíló á nýjasta megrunarkúrinum sem felst í því að nærast aðeins á laxerolíu og eitthvað í þeim dúr. Svo kaupir fólk þetta sorprit!!
Ég bara á ekki stakt orð........

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home