Placebo voru............ BESTIR, MAGNAÐIR, ÆÐISLEGIR!!
Þvílíkir performerar sem mennirnir eru, það er allveg leitun að öðru eins!!
Komst að því mér til mikillar furðu að Brian, söngvarinn, er alls ekkert svo sætur, frekar bara illa farinn af því að hafa lifað hinu "ljúfa" lífi of mikið (photoshop er greinilega ótrúlegt forrit!), en hins vegar reyndist sænski risinn, sem oss hefur alltaf þótt frekar ófrýnilegur, hið mesta sjarmatröll og trommarinn var enginn eftirbátur hans!
Þá kemur einmitt upp þetta sem ég var alltaf að segja við vinkonur mínar forðum þegar þær voru skotnar í Backstreet boys: Það er ekki hægt að dæma fólk af mynd, því að það getir gefið af sér vondan þokka í raunveruleikanum þótt myndavélin bókstaflega elski það. Svo er photoshop líka allveg ótrúlegt forrit :D Annars stjórnast gagnkvæm aðlöðun af efnafræðilegu ferli sem ég ætla ekki að fara út í hér...
Enn Placebo tóku ekki Bruise pristine, mér til mikillar sorgar, því það er lagið sem gerði þá að uppáhalds hljómsveitinni minni í heiminum fyrir rúmum sjö árum síðan...
En annars bíð ég spennt eftir harðsperrunum sem ég á eftir að fá í kálfana vegna tilrauna minna til að sjá eitthvað (helv... svið!) :D

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home