12 dagar í frelsið núna, og 25 dagar í að ég tapi því aftur....
Það er fljúgandi könguló inni í forstofu. Sem betur fer er ég með sígaretturnar mínar hér svo ég get notað aðrar útgönguleiðir við að komast út. Barn nr. 1 kemur heim eftir fjóra daga, þá verður mér bjargað.... Verst að veskið og lyklarnir eru inni í forboðna herberginu svo ég kemst ekkert að gera neitt..... Svo er GÍGANTÍSK fjallakönguló í eldhúsglugganum, hún fær að vera í friði ef hún hreyfir hvorki legg né lið. Það hefur greinilega bara verið misskilningur hjá mér að hér væri eitthvað illt á sveimi, skordýrin hafa aðeins tekið sér frí umræddan dag til að rotta sig saman um hvernig best væri að ráða niðurlögum mínum. Ljóst er að ég er í bráðri lífshættu hér inni á mínu eigin heimili.
Í gær sá ég annan nágrannan minn vera að taka eitthvað út úr bíl fyrir utan húsið sitt nýja. Hann er dökkhærður með gleraugu, virtist eðlilegur á allan hátt (en svoleiðis fólk er oft hættulegast...). Þau eigan nýjan jeppa, hann er silfurlitaður.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home