Í dag eignaðist ég nýja nágranna. Fólkið sem ég veit ekki ennþá hvað heitir er flutt út og nýtt fólk sem ég veit ekki hvað heitir er flutt inn. Þau eru víst á þrítugsaldri og með lítið barn. Kannski bjóða þau skemmtilegasta nágranna í heimi í teiti, og þá getum við haft okkar eigið neighbours í götunni, þar sem ég get ekki horft á plat-neighbours lengur :'(
Annars liggur mér herfilega á að flytja út, ég sá nefnilega svo flotta sófa og flott dæmi í loftinu á hótel borg í dag. Ég held að ég sé alvarlega veik eða eitthvað, en eitt er víst. Ég VERÐ AÐ VERÐA ALLVEG ANSKOTI RÍK HELVÍTI FLJÓTT ef ég á ekki að missa vitið!!
Hvenar ætli næsta þýska skemmtiferðaskip komi til landsins? Og Malú!!?!?!?!!!!
Ég sakna Malú :( Malú, ef þú lest þetta, viltu þá DRULLA þér aftur til landsins! Allavega bjóða mér í heimsókn til þín út!! Dóni :(
En eitt er víst, og það er að ég veit ekki hvað er víst, þetta skrifaðist bara.
Og svo eitt óskiljanlegt innskot: Þetta skildi þó aldrei vera lagið Return to sender???

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home