Í dag er vondur dagur.
Háskóli Íslands gaf öllu sínu staffi frí vegna veðurs, og þar sem ég er aðeins óbreyttur nemandi í prófalestri gat ég ekki leyft mér að fara með strákunum að fagna fríinu í sundi.
Það eru komnir köngulóavefir út um allt milli allra stóla og borða úti á palli, svo ekki er vogandi að setjast þar út við lesturinn.
Ég eyddi 6491 krónu í Fjarðarkaupum áðan í mat handa mér og systur minni.
Ég fékk tásæri eftir skóna mína.
Hacky sack boltinn glápir á mig endalaust.
Bakþankarnir aftan á fréttablaðinu voru ógnvænlegir. Þó er þetta það sem vér höfum alltaf vonað og vonum enn að gerist. Fokk þe monní!
Mig langar út og mada maji-ni naritakunai.
Takk fyrir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home