Í dag mætti ég í fyrsta skipti í skólann eftir allt of langt frí, í þeirri veiku von um að fá að berja nýju dýrin augum. Og viti menn, nýju dýrin voru í fríi í dag!! Dónar. Svo ég fékk bara ekkert nýtt blóð og þurfti bara að sætta mig við gamalt og misgott. En vér bíðum spennt eftir að sjá hvað morgundagurinn ber í skauti sér :D
Í dag reyndi ég að bjarga lífi lítillar býflugu sem hafði villst inn til mín og lá nær dauða en lífi á forstofugólfinu. Því miður var hún mun nær dauða en lífi svo hún lést þrátt fyrir björgunaraðgerðir. Ég sakna hennar, hún var svo fín :'(

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home