....Lyfleysan....

bull og vitleysa

sunnudagur, ágúst 15

Í dag ætla ég að gera grín af lyfjafræðingum, svona rétt til þess að æfa mig áður en skólinn byrjar.
Núna rétt í þessu var ég að vafra um á netinu og fór að skoða bloggið hjá Orra félaga mínum (sem er by the way verkfræðiplebbi, en þessi póstur er níð um lyfjafræðinga, verkfræðingar verða að bíða) og sé á lista hjá honum blogg stúlku sem ég kannast við sem er í lyfjafræði. Allt í lagi með það, ég ákveð að kynna mér málið. Ekkert merkilegt að gerast hjá henni en ég sé að á linkalistanum hennar eru nöfn eins og lybbalingurinn, lybbagellur og þess háttar. LYBBA!?!?! Hver fann eiginlega upp á ÞESSU?? Kommon. Ég ákveð að kynna mér það mál líka (reyna að skyggnast inn í óskiljanlegan hugarheim lyfjafræðinga) og á þeirra síðum er þetta eins! Semsagt lyfjafræðingar kalla sig lybba. Flott nafn. Það skal tekið fram að allar þessar síður voru bleikar (all over, ekki bara smá eins og mín), hægvirkar og skrifaðar á undarlegu tungutaki. Lyfjafræðingar virðast einnig hafa fjölmennt á Pink tónleikanna. Ætli þessir krakkar séu heilaþvegnir strax á fyrsta degi til þess að verða vangefin og leiðinleg? Ég er ekki að alhæfa, ég veit um allveg einn lyfjafræðing sem er bara fínn (eða fín) en hún er kannski bara sterkari en hin.
  • Hér
  • er allavega linkur inn á bleiku síðuna, og ég ætla að skýra alla efnafræðinga á mínum lista ebba e-ð, svo ég geti líka verið undarleg. Ég er bara að reyna að skilja....

    0 Comments:

    Skrifa ummæli

    << Home