Ógnvænlegir hlutir eiga sér stað á heimili mínu þessa stundina. Við nánri rannsókn á köngulónum, sem núna bera allar nöfn (Katrín, Einar, Jónatan og Guðríður Inga), komst ég að því að Katrín er öðruvísi en hinar. Og við enn nánari skoðun (já, ég er farin að þora að skoða þær þeirra megin við gluggann :D ) komst ég að því að hún hlýtur að vera ólétt!! Hún er allavega með stóran hvítan belg á rassinum sem stækkar á gríðarlegum hraða. Og þó að mér þyki ofurvænt um hana þá veit ég ekki allveg hvort ég vilji fá nokkur hundruð í viðbót. Svo nú eru góð ráð dýr, og það rándýr....
Harpi fór út að kaupa handa mér ís. Namminammi :þ

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home