....Lyfleysan....

bull og vitleysa

þriðjudagur, ágúst 24

Hahahahaha á laugardaginn ætla ég að vera fullur!!! Hahahahahahahaha :)
Úúúúúú ætli ég sé nokkuð að missa vitið, eða kannski vissa mitið??
Nei, ég er að beita aðferðinni: Ég hugsa ekki, því ef ég hugsa ekki, þá er ekkert sem veldur mér áhyggjum og hugarangri. Þeir sem hugsa ættu því að redda sér hansahillum til að pússa niður, kaupa sér fiska og fiskabúr sem þarf alltaf að vera að þrífa, eiga óhuggulega mikið af skóladóti sem þarf að sortera ( :s ) og ganga í UVG því þar er djamm á laugardaginn!! Og lesa mikið af nýmódernískum skáldskap því þá hefuru bara sýru að hugsa um, ekkert sem mögulega getur böggað þig. Mæli með þessu.
Ég var að uppgvöta soldið í vinnunni í dag: Börn sem fæðast fimmta maí tvöþúsund og fimm eru að vera getin núna bráðum. Mjööööög merkilegt.
í dag var ég spurð að því í fyrsta skipti á ævinni hvort ég ætti barn. Ég er orðin mjög gömul!
Það er reimt heima hjá mér, eldhúshurðin ÚT er alltaf að opnast. Svo er pabbi búin að fjarlægja anachrophobiu-þerapíuna mína, eða köngulónna Katrínu. Svo nú verð ég örugglega aftur örðin hrædd við köngulær næsta sumar.
Það eru alltaf að ráðast á mig ógeðslegar hrossaflugur, oj bjakk!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home