....Lyfleysan....

bull og vitleysa

laugardagur, ágúst 21

Það hefur bara ýmislegt drifið á vora daga síðan ég bloggaði síðast, merkilegt nokk. Ég er allveg að verða búin að pússa niður hillurnar, smá byrjuð að laga til í herberginu og farin að hugsa um að þrífa fiskabúrið. Þannig að þetta er allt í vinnslu. Annars er ég bara búin að vera of upptekin við að njóta ljúfa lífsins til þess að gera eitt eða neitt, maður tímir ekkert að eyða þessum örfáu, sem virðast ætla að vera helvíti margir, sólardögum sem eru hér á þessum klaka innandyra.
En anyway, á fimmtudaginn bauð Einar Kári mér á Tapas í skaðabætur fyrir allan próflesturinn í góða veðrinu, og þar borðuðum við ÓTRÚLEGA góðan mat og drukkum fullt fullt af víni. Sem er mjög gott mál :) Einar fær titilinn riddari vikunnar og fær að vera bestur ;) (Takk, ég held að ég sé ennþá södd...)
Svo í gær fór ég á austurvöll með Pálu og fékk mér nokkra öllara, og fór síðan aftur með Helgu og fékk mér fleiri, og svo fórum við heim til Kristínar og héldum áfram drykkjunni þangað til við ákváðum að skella okkur á Óðal. Það var mjög gaman!! Og við komumst frítt inn og alles því við erum svo yndislegar. Þegar óðal var hætt að vera spennandi röltum við á 22 og vorum þar að dansa og tjútta og skemmta okkur. Lentum í hörkusamræðum við einhverja kana, sem ég reyndar skildi ekkert í þeir töluðu með svo bjánó hreim.... Svo hitti ég aftur Óskar minn eftir eitt og hálft ár af no-seen og var heima hjá honum að ræða dulspeki og drauma til 10 í morgun. Svo nú er ég Ester sem hefur ekkert sofið og nýbúin að djamma í 20 klukkutíma. Frábært :)
en það hófst eitt gott upp úr þessu; Feigðardraumurinn minn boðar ekki feigð. Svo ég er ekki að fara að deyja sometime soon.
Núna ætla ég að halda áfram að gera upp við mig: Sofa? eða: bærinn?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home