....Lyfleysan....

bull og vitleysa

laugardagur, ágúst 7

Til hvers er eiginlega þetta helvítis internet þegar það er svo mikið af upplýsingum á því að maður finnur ekki neitt? Þetta er nú meira draslið..... Ég hefði kannski átt að fylgjast aðeins betur með framhaldskólastærðfræðinni svo ég þyrfti ekki að vera að reyna að finna út úr einhverju drasli núna (þegar maður er í framhaldskóla er það allgjör óþarfi og bara rugl að vera að leggja á minnið hugtök og hinar ýmsu reglur sem manni finnast frekar tilgangslausar). Alltaf þegar ég heyri fólk á yngri árum en ég sjálf er segja: "hornafræði, hver þarf að nota það!" , "hverjum er ekki sama um runur og raðir, það er ekki eins og þær bjargi heiminum" og fleira í þeim dúr þá hlæ ég upp í opið geðið á þeim. Ha ha ha ha ha haaaaaaa....... Bíðiði bara.... ójá, bíðiði bara......
Ef einhver getur skilgreint fyrir mig hlutrúm, hlutmengi, grunna og hvað sem þetta heitir allt, well, shoot! Mér datt í hug að það væri kannski sökum vöntunar á skilningi hvað mér gengur útreikningurinn erfiðlega.

Kaffi er það besta sem ég veit.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home