....Lyfleysan....

bull og vitleysa

mánudagur, september 13

Ég er búin með öll Matlabverkefni, búin með Saprtanverkefnið, búin með öll heimadæmi fyrir vikuna, nú þarf ég bara að lesa og reikna smá og þá get ég farið SAMVISKULAUS í vísó á föstudaginn og drukkið mig peeeeeeðölvaða. Og legið í þynnku minni allan laugardaginn eins og sannur eymingi.
Svo næsta mánudag fæ ég ýktað flotta stafræna myndavél þegar móðir mín og faðir koma frá útlandinu, og svo er mig farið að langa svolítið til þess að kaupa mér fartölvu frá Macintosh, og hafa í henni Spartan og Matlab og svoleiðislagað, og ávinna mér þannig inn ómælanlega virðingu annarra fjölskyldumeðlima sem snillingur í vísindum og tölvum.
Í dag fékk ég óbeint hrós, ég lánaði Helgu sloppinn minn í verklegt og þar hneyksluðust tvö stykki lyfjafræðingar á hvað hann var blettóttur (ásamt því að lýsa því yfir að þær þvægju sína sloppa reglulega). Hver vill ráða brjálaðan vísindamann í vinnu ef hann er í tandurhreinum slopp? Það er veikleikamerki.....
En jæja, ef þið eruð farin að velta því fyrir ykkur hvort ég sé endanlega búin að missa mig, þá er ég núna stödd upp í skóla, í maccanum, og klukkan er að verða hálf tólf á mánudagnóttu, og er að lesa stærðfræðilega varmafræði.
Já takk.

P.S. Malú kemur á morgun!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home