Jebb, maður er varla risinn úr rekkju og búin að koma hausnum í lag á blautum laugardegi fyrr en faðir manns tilkynnir manni að hann sé búin að kaupa annað mótorhjól. Og í þetta skipti er það eldgömul þrumureið með hliðarvagni :) Vííííí !!
Annars var núnemaferðin bara góð, ég spjallaði ekki við einn einasta nýnema heldur hengdi mig á mína gömlu góðu skólafélaga, og þá aðallega Marínó, Elínu, Helgu og Arnar. Ég kleif fjöll og sagði gamlar íslenskar munnmælasögur, lét svíkja út úr mér SÍÐUSTU dumlekarmelluna (Ég fyrirgef þér þetta ekki fyrr en þú ert búin að borga mér hana Ragnar.... ) og lét ímyndunaraflið næstum hlaupa með mig í gönur vegna hinna ýmsu steingerðu trölla sem voru upp á fjallinu.
Sjitt hvað mig langar í ís. Ég ætla að fá mér ís.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home