Jörðin er flöt. Ég hugsaði um það í gærkveldi og komst að þessarri niðurstöðu. Jörðin er flöt.
Svo er ég BRJÁLUÐ út af þrennu:
- Af hverju var ekki fjallað meira um ólympíuleika fatlaðra í imbakassanum og FM-mótakaranum? ég veit ekki nákvæmlega hvernig verðlaunapeningastaðan er hjá þeim, en ég veit að slegin voru t.d. heimsmet..... Það er eitthvað annað heldur en liðleskjurnar og aumingjarnir á ólympíuleikunum fyrir ófatlaða.
- Hvað er málið með að ráða Jón Steinar Gunnlaugsson sem hæstaréttardómara? Það skyldi þó ekki hvarfla að manni að sjálfstæðismaðurinn Geir H. Haarde hafi ákveðið að ganga fram hjá þeim þremur sem hæstiréttur taldi hæfasta og ráða svarin flokkslepp vegna pólitískra ástæðna? Dettur einhverjum það í hug?
- Í fréttunum í imbakassanum áðan var ekkert minnst á fjöldamorð smástelpnanna með krullurnar og kollhúfurnar fyrir botni miðjarðarhafs. En hverjum er ekki sama um nokkra araba....
Mig dreymdi mjög undarlega í nótt. Það jafnvel jaðraði vað að vera sick. Og ég er ekki að tala um súrrealíst sick núna, heldur bara sicksick. Ég er að spá í að útlista drauminn atarna ekkert frekar hér.
Mig langar til þess að vera skammtafræðileg ögn, ég held að það sé svaka gaman :) Allavega langar mig að vera ögn, þá væri ég krútt, en ekki vond norn eins og Marínó segir að ég sé. En það er allt í lagi, ég er hot norn og hann er básúnuengill, svo ég myndi kjósa nornina af tvennu illu.
Mig langar út að leika :(

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home