Kyrrþey. Við vitum öll hvað kyrrþey þýðir, ekki satt?? Vera grafinn í kyrrþey til dæmis?
Myndi ykkur einhverntíma detta í hug að kyrrþey væri eyja í Karabíska hafinu það sem Guðrún Katrín og Keikó væru jörðuð?
Nei, eflaust ekki (ég treysti því að það sé allavega vottur af heilasellum í félögum mínum).
Vinkona Eysu á hinsvega vinkonu sem heldur þetta. Að kyrrþey sé eyja í karabíska hafinu þar sem fólk er jarðað ef það deyr á sorglegan hátt. Móðir hennar heldur þetta víst líka.
Og til að taka af allan vafa um að þetta hafi verið létt spaug hjá stúlkunni þá komst málið upp þegar hún stakk upp á því að þau myndu skreppa þangað í ferðalag.
Og af hverju ættu menn að vilja grafa hval? Er þeim ekki bara sökkt??
Ég hef sjaldan hlegið jafn mikið......

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home