....Lyfleysan....

bull og vitleysa

miðvikudagur, september 1

Markmiði mínu til tæpra þriggja ára hefur verið náð. Í dag keypti ég síðustu tvær Murakamibækurnar sem mig vantaði í safnið. Nú vantar mig eitthvað nýtt að safna, fyrst Murakamisafnið mitt er fullkomnað (fyrir utan þessar bækur sem eru búnar að vera í láni í TVÖ ÁR, taki það til sín sem eiga). Mér líður núna eins og ég hafi enga fótfestu í lífinu.
Keypti mér líka don kíkóta (mér er ansk... sama hvernig þetta er skrifað) á 1395 krónur, og enn blöskrar mér að svona meistaraverk skuli vera seld svona billigt, en það skal tekið fram að um daginn keypti ég war and peace á 1695 krónur, og báðar eru þessar bækur yfir 1000 síður. Eg held samt að ég hafi skammast þá svo ég ætla ekki að gera það aftur. Svo keypti ég líka meistarann og margarítu og ætlaði að kaupa heildarsafn H.C. Andersen (eða öll grimmsævintýrin, gat ekki ákveðið) og nýju Paulo Coelho bókina en ég ákvað að hafa stjórn á mér og hætta þegar ég tók eftir því að ég var komin með öran andardrátt og hjartslátt. Ég er semsagt fíkill. Á morgun ætla ég að spyrja Elínu hvaða Terry Prachett bók er best og kaupa hana, þá get ég kannski farið að safna þeim ef mér líst vel á :D

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home