Matlab gekk aðeins betur í dag, reyndar bara mun betur :) Næstum búin! Ég reyndar neyddist til að hætta þegar maccinn fraus á mig og fór að vera með kjaft (Ragnar ég hélt að maccarnir ættu að vera áræðanlegri en PC??) Annars er ég með HAUSVERK og ég er ÞREYTTUR og mig langar að kunna meiri japönsku en ég geri nú. Hver ætlar að koma með mér til Japan í sumar að læra japönsku??
Kannski fer ég á stærðfræðingabjórkveld í kveld, ef ég nenni. Annars er ég ekki búin að nenna að læra í tvo daga því ég er svo drained eftir matlab að ég þarf kannski að gera eitthvað um helgina.... Markmiðið er allavega að komast samviskulaus í vísó um næstu helgi og halda áfram að safna fólki sem ég hef bitið í hálsinn.
Svo er ég að fara í kommúnistaleik á morgun kannski:
Minnt er á áður boðaðan opinn fund Vinstri-grænna í Reykjavík á morgun,
laugardaginn 11. september, í Suðurgötu 3. Fundurinn ber yfirskriftina
„Stríð gegn hryðjuverkum – hver er árangurinn?“.
Frummælendur eru Árni Bergmann og Anna Pála Sverrisdóttir, fundarstjóri
Sverrir Jakobsson.
Fundurinn hefst kl. 14:00.
Umræður og heitt á könnunni.
Allir velkomnir.
Hey ég er orðin maccavædd!! Ég ýtti óvat á "slaufu" c í stað ctrl c!!
Vá hvað ég er heilaþvegin.....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home